Létt í lund
Leitarbox

29.04.2008 23:29:20 / lett i lund

Hva...? Þriðju..??

Jú jú.. vikurnar æða áfram.
Héðan er nákvæmlega ekkert að frétta. Allt við það sama bara. Læt streituna og álagið taka af mér völdin, borða vitlaust (gríp það sem hendi er næst), hreyfi mig nær ekkert.. og þannig mætti lengi telja.
Vigtin sagði 85,5 í morgun :frown:

Reyel: það er eins gott fyrir þig að taka með gönguskó því það verður sko labbað! Líka sundföt - manstu? Hlakka hrikalega til að hitta þig krúttið mitt ;)

Aðrir: ef þið eruð ekki hættar að koma hingað; vona að þið hafið það gott og ekki missa trúna á mér.. I'LL BE BACK  :klikk:

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 13:13:53 / lett i lund

Skýrsla fyrir síðustu viku

Mataræði: Frekar slakt. Skrifaði matardagbók fyrir 3 daga af 7 og sá þá vel svart á hvítu hvað þetta er orðið slæmt :(
Hreyfing: Þokkaleg. Hef farið út að labba flesta dagana, ekki alveg alla þó. Engin önnur hreyfing. :$
Vatnsdrykkja: Upp og ofan. Hef drukkið 1 líter suma daga, 1 og hálfan eina 3 daga, líklega 2 dagar sem nær engin vatnsdrykkja var :^)
Vigtin: var 84 kg eftir morgunmat í morgun. 1 og hálfu kg léttari en fyrir viku - þrátt fyrir allt!! :d
Annað: Hef átt mjög erfitt undanfarið og stend frammi fyrir miklum breytingum á lífi mínu og minna nánustu. Hef þ.a.l. ekki haft mikla löngun til að blogga og þessi líðan hefur ansi mikið að gera með hversu illa gengur með heilsuræktina. Undanfarna viku hef ég þurft á lyfjum að halda til að komast í gegnum lífið.

Óska ykkur öllum alls hins besta. Lofa engu bloggeríi næstu vikuna en stefni á að skrifa a.m.k. skýrslu vikulega.

» 10 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 13:35:10 / lett i lund

Áframhaldandi barsmíðar..

Steig á vigtina í morgun. 85,5 kg :^) Það er engin hemja heldur hvað konan getur í sig látið þessa dagana og næringarinnihaldið ekki af betri endanum (getur maður sagt það?)

Tók saman áætlun fyrir næstu vikuna. Ætla ekkert að þykjast neitt og fara af stað í hlutina með látum. Þetta verður tekið skref fyrir skref.

Þessa næstu viku er stefnan að halda sig við að drekka 1 og hálfan til 2 lítra af vatni daglega. Fara lágmark í 30 mín göngutúr daglega og skrifa matardagbók. ALLT mjög vandlega skráð niður.

Bíð eftir að heyra hvort Reyel ætlar að vera með.. og skora hér með á litlu systur líka ... 8)

» 11 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 13:24:40 / lett i lund

Vigt ... eða teljari??

Ég hef grun um að eitthvað skrítið sé í gangi með vigtina mína! Eða .. tækið á baðherberginu sem ég HÉLT að væri vigt!! Ég steig á hana á mánudagsmorgni 83 kg, þriðjudagsmorgni 84 og fyrir einhverja slysni aftur á miðvikudagsmorgni og þá sýndi hún 85. Er hún ekki bara að telja skiptin sem ég hef stigið á hana? :$

Ég ætla a.m.k. að halda mig fjarri henni þangað til næsti þriðjudagur rennur upp. Þetta er nú ljóta bullið :evil:

Hef ekki mikið skemmtilegt að segja þessa dagana.. svo ég sleppi því bara að segja nokkuð. Heimurinn er eiginlega að hrynja í kringum mig þessa dagana og lítið um ljós í myrkrinu. (Ég er að leita að því, Reyel.. promiss!!)

Kannski er "vigtin" andlegur þyngdarmælir?

» 5 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal