Létt í lund
Leitarbox

31.10.2005 12:54:30 / lett i lund

Matur... og kók

Ég skrifa þetta í miklum flýti því ég þarf að mæta aftur í vinnu eftir korter. Ég hef því miður alltof mikið að gera í vinnunni um þessar mundir sem gerir mér erfitt fyrir bæði varðandi það að blogga og bara það að passa matarræðið. Ég missi úr matartíma og er þá farin að grípa það sem hendi er næst þegar tækifæri gefst. Það er ekki nógu gott. Ég var t.d. að vinna í gær og matarræðið á mér þann daginn var fyrir neðan allar hellur. Ég borðaði múslí með undanrennu í morgunmat. Það var reyndar hálfgert "brunch" því ég borðaði svo ekkert aftur fyrr en um 4 - þá borðaði ég hálft epli (reif það í mig í örstuttri pásu) og svo borðaði ég algjöran bombukvöldverð sem hubbinn eldaði 8| Svínakjöt með kartöfluskífum, strengjabaunum og sósu! hmmm auk kóksins :^)

Í morgun borðaði ég súrmjók með Cheerios, hafði engan tíma í morgunkaffi og var núna að borða afgang af kvöldmatnum (því miður líka með kóki). Maðurinn minn er algjör "kókisti" og ég er búin að eiga í stríði við hann í mörg ár út af því. Á tímabili var ég m.a.s. eiginlega búin að setja honum afarkosti; ég eða kókið!! Og þá hætti hann því alveg um tíma. Einhvern laumast þetta samt alltaf inn í ísskápinn aftur :frown: Ég verð að komast í það að búa mér til skipulag, versla almennilega og fá kallinn með mér. Þetta gengur aldrei svona!

Í lokin langar mig að þakka þeim sem hafa sent mér hvatningu og góð orð hingað á síðuna mína og bætt mér inn á tenglaskrá hjá sér. Ég bæti ykkur inn hjá mér við fyrsta tækifæri.

Tsjutsju: Hvernig líst þér bara á mánudagsmorgna? Ég vigtaði mig í morgun og var fegin að sjá að ég hef ekki þyngst á síðustu dögum. Ég er í 89 kg í dag eins og ég hef verið í um 3 vikur núna. Það eru akkúrat 10 kg minna en ég var í maí s.l. Ég bý á litlum stað úti á landi og hef ekki tök á að mæta í vigtun hjá DDV einu sinni í viku. Þú verður því bara að taka mín orð gild fyrir árangrinum :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2005 12:20:33 / lett i lund

1. markmið

Ég svaf til 11 í morgun sem er þvílíkur lúxus fyrir móður ungra barna :) Ég byrjaði daginn á muslí í undanrennu. Ég er ekki að fara eftir neinum ákveðnum "matseðli" en er þó búin að taka 1. ákvörðunina: út með kókið! Ég var hætt að drekka kók við upphaf þessarar ferðar en einhvern vegin hefur það nú læðst að mér aftur og er - einhverra hluta vegna - orðið ein af undirstöðum "nauðsynlegs" matarræðis hjá mér :whut: En semsagt: Nú er kók og aðrar gostegundir í algjöru banni. Ætla að láta þetta nægja í dag nema... ég ætla mér að skrifa hér inn n.k. matardagbók því ég hef fulla trú á því að það hafi áhrif á það hvað ég borða, þó ég sé ekki með fyrirfram skipulagðan matseðil. Annars hef ég tekið eftir því að það eru margar girnilegar uppskriftir í gangi hjá átaksbloggurum svo ég á örugglega eftir að skoða það betur.


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.10.2005 03:47:08 / lett i lund

So far so good

Ég ákvað að prófa þessa leið til að hvetja sjálfa mig áfram á þeirri braut sem ég hef nú þegar fetað í um hálft ár. Ég er í dag 10 kg léttari og eiginlega bæði ánægð og hissa 8) Ég átti satt að segja ekki von á að þetta myndi ganga svona vel. Ég hef samt ekki verið í hefðbundnu átaki, þ.e. ekki verið í ræktinni, á neinu sérstöku sérfæði né mætt einhvers staðar til viktunar í hverri viku. Ég byrjaði á því að fara út að ganga á hverjum degi, auka vatnsdrykkju og bara vera duglegri við að kaupa ávexti og grænmeti. Auðvitað er ekki nóg að kaupa það ;) ég hef nú líka verið dugleg við að borða það sko..! En þó ég hafi ekki verið að borða eftir einhverjum ákveðnum "reglum" þá hefur þetta nú samt smá saman saxað af mér þessi kíló.

Nú er aftur á móti komið að þeim árstíma sem ég veit að mér hættir til að þyngjast. Þegar dimmir, snjór og ófærð fer að spila rullu í daglegu lífi og síðast en ekki síst er ég undir miklu álagi í nýrri vinnu. Núna þarf ég semsagt að fara að halda vel utan um þetta, setja mér markmið og passa að ekki sæki í sama, gamla farið aftur.

Síðastliðið vor var ég komin í offituflokkinn skv BMI (31) en nú er ég í ofeldi (28 ). Eins og ég hef áður sagt er ég búin að missa 10 kg og set stefnuna á að vera búin að missa önnur 10 fyrir 1. júlí 2006 :lol: Þá verð ég líka komin í "heilbrigði"-flokkinn skv BMI (um 25). Lokamarkmiðið er þó 5 kg í viðbót sem ég ætla að vera búin að ná á tímabilinu sept-des 2006 (ákveð það betur síðar)

Þá er það stóra spurningin: Hvernig?

Framhald á morgun 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal