Létt í lund
Leitarbox

25.02.2009 21:50:28 / lett i lund

A bit better..

Sama kg-tala, fituprósentan 0,6% lægri. Ég er því komin í 35% slétt og í svipuðum sporum og ég var um síðustu mánaðarmót.
Ég er því ekki að ná markmiðum þessa mánaðar :(
Ég fann ekki málband í morgun og gat ekki tékkað á ummálsmælingum en ég á ekkert von á neinum stórfréttum þar. Komi málbandið í leitirnar á næstu dögum þá kannski skelli ég á mælingu. Annars er líka spurning um að bíða með það þar til eftir aðrar 4 vikur. We'll see.
Annir heima fyrir og í vinnunni hafa gert mér ómögulegt að æfa síðustu daga. Ég fór semsagt á sun og mán, en ekki síðan þá. Vonandi verður smuga á morgun og fös :-)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2009 21:48:15 / lett i lund

Enn ein vikan..

Vá hvað tíminn er fljótur að líða!
Ég skrifaði aldrei niðurstöðu síðustu viku enda var hún lítið til að monta sig af.
kg-eins, smá viðbót í fituprósentu. Akkúrat núna man ég ekki nákvæmlega hversu mikið.. en minnir að það hafi verið 0,3%.
Aftur viktun á morgun... hmmmm



» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2009 23:00:17 / lett i lund

þvældur þriðjudagur

Svakalega bissí dagur með ótal flækjum, þvælingi og veseni.
Samt ekkert voðalega slæmur. Fyrirparturinn tók verulega á andlega.. seinniparturinn var afslappaðri en samt áfram þvælinn.
Ég náði ekki að fara í ræktina í dag og er hreinlega með fráhvarfseinkenni þess vegna. Það er verst að ég kemst ekki heldur á morgun nema eitthvert kraftaverk komi til.
Mataræðið í dag var þokkalegt. Þrátt fyrir þvælinginn tókst mér að einskorða sukkið við kaffibolla en ekkert verra en það. Keypti mér t.d. epli til að seðja hungrið á heimleið eftir þvælinginn þar sem heldur langt var í kvöldmatinn.

Vigtun í fyrramálið.. wish me luck.. I'll need it :$



» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 22:58:27 / lett i lund

"Góður" mánudagur

Þetta var athyglisverður dagur. Ég byrjaði daginn í ræktinni þar sem ég tók á efri hlutanum. Gekk mjög vel og ég þyngdi á nokkrum æfingum 8)
Matarlega séð var dagurinn fínn.. smá kaffisukk um miðjan daginn en annars alveg þrusumataræði. Nammilöngunin var að drepa mig eftir kvöldmatinn og þá hellti ég nokkrum rauðvínsdropum í glas frekar en leita uppi sykur ;)
Að öðru leiti var dagurinn rosalega erfiður. Tók á andlega og ég var bara mjög niðurdregin, þreytt og aum af mér um kvöldmatarleitið. Er þess vegna mjög stolt af sjálfri mér að hafa staðist allar freistingar.
Ég fór reyndar ekki á gönguskíðin í kvöld eins og til stóð en það var vegna þess að ég þurfti að vinna eftir kvöldmatinn. Er núna búin að slaka á yfir rauðvíninu og kúpla vinnunni út úr hausnum.. svo þá ætla ég að henda mér í bólið.
Góða nótt krúttin.



» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2009 16:48:03 / lett i lund

Nýjustu tölur



Ég gleymdi að vigta mig og mæla á miðvikudagsmorguninn svo ég gerði það í morgun í staðinn. Kílóið aftur farið og fituprósentan örlítið lægri eða 0,3%. Allt í rétta átt.. þarf bara dálítið meira trukk í þetta.

Ég átti hvíldardag í gær og endaði þann dag á saumó með tilheyrandi bragðlaukagleði :)

Í dag klúðraði ég nestismálunum mínum. Það bara má ekki gerast! Ég "neyddist" því til að fá mér brauð í kaffitímanum og var ekki búin að borða neinn hádegismat þegar ég loksins komst út úr skólanum kl 3 :( Var þá orðin aðframkomin af hungri og vægast sagt pirruð. Ég veit að þetta er það sem ég þarf helst að taka á. Ég er í raun að borða ágætis mat að langflestu leyti en ef vinnan eða eitthvað annað setur strik í reikninginn þá þarf ég að vera undirbúin og geta gripið í eitthvað skynsamlegt.

Daginn í dag ætla ég að enda á gönguskíðunum. Í fyrramáli byrjar svo dagurinn í ræktinni þar sem ég tek á efri hlutanum og sá neðri fær að kenna á því á laugardaginn.
 



» 6 hafa sagt sína skoðun

10.02.2009 21:59:20 / lett i lund

Dugleg Létt

Ég fór á gönguskíði í gærkvöldi, kom heim rjóð í kinnum og kófsveitt :haha: Bara dásamlegt.
Í dag dreif ég mig í ræktina eftir vinnu og tók vel á. Gerði sömu æfingar og orsökuðu 5 daga strengi fyrir rúmri viku OG bætti við þyngd á 3 æfingum 8) Já já maður þykist vera einhver tappi í dag.. hehe.
Ég verð að viðurkenna að ég endaði daginn á smá sukki. Átti smá sælustund með börnunum og þar fékk ég mér bæði kók og smá súkkulaði. Ekki það gáfulegasta en ég er ákveðin í að einblína á jákvæðu hliðarnar núna. Hef að öðru leiti staðið mig mjög vel varðandi mataræði þessa síðustu daga og hreyfingin verið fín líka. Á morgun held ég strikinu með mataræðið nema ég fer í saumó um kvöldið og ætla mér að taka út nammidaginn með þessu sukki í kvöld og veitingunum í saumó annað kvöld. Meira verður ekki af sukki fyrr en helgina 20-22. feb.. takk fyrir takk. Hef lika bara ekkert með það að gera. Það er frídagur í ræktinni á morgun en svo lyftingar aftur á fim og fös. Svo þarf ég að kippa meiri brennslu inn í prógrammið. Held að skíðin nægi mér samt þessa vikuna.
Morgundagurinn hefst á vigtun og fitumælingu.. athyglisvert að sjá hvernig það kemur út núna.
Bestu kveðjur :d

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2009 19:17:11 / lett i lund

Í tómu tjóni

Búin að vera í tómu tjóni með þetta allt undanfarið. Vigtun síðustu viku sýndi 1 kg í aukningu og 0,8 % af fitu - sömuleiðis í plús. Ég var svo úr takti við þetta allt saman að ég nennti ekki einu sinni að skrifa á bloggsíðuna um ástandið.

En.......ég fór í ræktina í morgun, búin að passa mataræðið vel í dag og er núna á leið á skíði! Jeps.. engan vegin hætt einu né neinu enda ekkert val um það. Hollara mataræði og góð hreyfing er bara einfaldlega það sem ég þarf til að fúnkera og jákvæð áhrif þess á kg-tölu, fituprósentu og ummál verður bónusinn. :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 22:55:57 / lett i lund

Mánaðaruppgjör janúar-mánaðar

Þá er komið að fyrsta mánaðaruppgjöri ársins.
Það lítur svona út: 

Dags

Kg

Breyting

Br. alls

%

Breyting

Br. alls

31.12

83

 

 

36,6

 

 

7.1.

83

0

0

36,3

0,3

0,3

14.1.

82

1

1

35,3

1

1,3

21.1

82

0

1

34,7

0,6

1,9

28. 1

82

0

1

34,8

-0,1

1,8

 

Dags

Kálfar

Læri

Rass

Magi

Mitti

Emagi

Brjóst

Axlir

Upph

Breyting

31.12.

39

63

110

114

98

92

103

38

32,5

 

28.01

39

65

112,5

114

97

92

103

38

32,5

+ 3,5 cm


Mér finnst þessi niðurstaða alveg í takt við það hvernig mánuðurinn hefur verið hjá mér og er alls ekki ósátt. Ég hef ekki náð að hreyfa mig eins og ætlunin var og sentimetrarnir sýna það ágætlega. Aftur á móti hef ég reynt að passa upp á mataræðið og held að það sé það sem kg-tala og fituprósenta eru að endurspegla.

Markmið mánaðarins voru að missa 2 kg og 1 fituprósent.. það snérist eiginlega við því ég missti 1 kg og 1,8 fituprósent.

Bara gott mál.. on with the program.

Ég skrifaði matseðil og hreyfingaráætlun fyrir næstu vikuna í gærkvöldi. Stóðst hana alls ekki í dag en það þýðir ekkert að væla yfir því.. geri betur á morgun.

Góða nótt og best of luck ... 8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2009 21:28:08 / lett i lund

Lítið en samt... í rétta átt

Hef voðalega lítið að segja núna. Síðastliðin vika hefur verið ansi bissí og ég get ekki sagt að hreyfingu hafi verið sinnt (fyrir utan erilinn í vinnunni). Mataræðið hefur verið upp og ofan. Oftast er ég að ná að borða reglulega og hollustan verið fyrirferðameiri en hitt (eitthvert "sukk" hefur þó slæðst með).

Ég ætla í vinkonuferð til borgarinnar á morgun og á því ekki von á að vigtun/mæling næsta miðvikudag verði glæsileg.. en ég geri mitt besta til að svo verði. Reyni að stilla mataræðinu í hófi, fá mér a.m.k. göngutúra og taka svo hörkubrennslu á þetta þegar ég kem til baka. Þá verður kominn tími á málbandið aftur!!

 

Dags

Kg

Breyting

Br. alls

%

Breyting

Br. alls

31.12

83

 

 

36,6

 

 

7.1.

83

0

0

36,3

0,3

0,3

14.1.

82

1

1

35,3

1

1,3

21.1

82

0

1

34,7

0,6

1,9

 

Í þessari viku stóð vigtin í stað en fituprósentan hafði lækkað um 0,6%.

Samkvæmt þessu hef ég góðan séns á að ná markmiðum mánaðarins og það er sko engin uppgjöf í minni þó ég sé orðin pínu pirruð á að koma ekki almennilegu skikki á þetta.
Gangi ykkur vel :haha:


  



» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 17:05:56 / lett i lund

Léttingur...

8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)

ó je.. ó je.. ó je, óje, óje.... *dansar um gólf*

Niðurstaða vigtunar í morgun: 1 kg farið.. 1% farið

Ég veit eiginlega ekki alveg hvað veldur því ég er ekki að standa við áætlun um hreyfingu og mataræðið er stundum skynsamlegt en oft fáránlegt!!

En þetta er SAMT léttingur og það tekur hann enginn frá mér.. :evil:

Þetta var besta hvatning sem ég gat fengið til að standa mig betur.

8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.01.2009 23:21:05 / lett i lund

Report fyrir fimmtudag og föstudag

Planið gekk ekki upp hjá mér þessa daga. Ég ætlaði mér að fara í ræktina báða dagana og átti að hafa pottþétta stund til þess á fimmtudegi, hafði smá áhyggjur af föstudegi en hugsaði með mér að þá færi ég bara í staðinn um helgina. Á fimmtudeginum fór svo allt úrskeiðis, ég komst ekki úr vinnunni og tækifærið flaug hjá. Ég velti því fyrir mér núna hvernig ég geti tæklað svona tilfelli. Í sjálfu sér er ekkert einfalt svar við því nema bara að halda áfram og láta þetta ekki á sig fá. Það er bara þannig að maður getur ekki stjórnað öllu í lífinu. Eftir vikuna var ég svo líkamlega búin á því að ég lagðist upp í sófa heima hjá mér eftir vinnu í dag og áður en ég vissi af var ég sofnuð! Var ein og gat því slappað vel af og þá bara steinsofnaði ég. Ég fór því ekki í ræktina í dag heldur. :$

so what? Ég er barnlaus um helgina og get því ráðstafað tíma mínum algerlega sjálf. Set því stefnuna á ræktina á laugardag og sunnudag, hvíld á mánudag, rækt á þriðjudag.. þarf svo að skoða hvernig ég ætla að láta hitt ganga.. svo ekkert skemmi fyrir mér þá vikuna. Gera strax plan B og C..

Ég get, ég ætla og ég skal.... GÆS-in sígilda..


Farin að sofa :) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 20:57:24 / lett i lund

Vigtunardagur



Blessaðir vigtunardagarnir geta ekki allir verið tóm sæla. Það er ljóst.

Þessi dagur var erfiður frá upphafi... já eiginlega áður en hann hófst því nóttin var andvökunótt :( Datt í alls konar vonlausar hugsanir um allt og ekkert. Vinnudagurinn tók verulega á taugarnar og ég var þeirri stund fegnust þegar ég gat yfirgefið vinnustaðinn (reyndar ennþá með ýmis vandamál þaðan í höfðinu). Eftir að heim kom tók við smá viðgerðardjobb á heimilinu sem gekk illa, yfirferð yfir fjármálin sem ég fékk nokkur sjokk yfir og svo að díla við einn óstöðvandi orkubolta. Er ekki hægt að tappa af svona grísum og nota það sjálfur??

Anyway... vigtunin var ekki sérstaklega uppörvandi. Ég stend í stað :cry: Eins með fitumælinguna.. bara örlítil lækkun þar og engan vegin marktækur munur. Ég hefði alveg þegið eitthvað meira hvetjandi í dag af öllum dögum. En þetta kemur... er alveg sannfærð um það. Ætla að leggjast yfir "vöðvablöðin" sem systir mín var á leiðinni að henda áðan :haha:



» 4 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 22:34:55 / lett i lund

Á blússandi ferð..




Jamm og já.. sofnaði ekki fyrr en kl 3 í fyrrinótt, vaknaði kl hálf 7 og fór í ræktina :d HRYLLILEGA stolt af sjálfri mér :haha: Ég var orðin svo þreytt um kvöldmatarleitið að ég hélt að ég myndi sofna sitjandi við borðið :p Fór því bara að sofa með krökkunum mínum kl 9! Svaf eins og rotuð til 7 og var bara alls ekkert fersk þegar ég vaknaði. Ég fór í stutt en heitt bað áður en ég hélt til vinnu til að mýkja upp stirðan skrokkinn. Það hjálpaði alveg helling og restin af deginum gekk bara mjög vel.

Ég er búin að ákveða það núna að setja aðaláhersluna á hreyfinguna þessa vikuna. Ég fer síðan ofan í saumana á mataræðinu um helgina (fyrir næstu viku). Ég er samt ekki í neinu stjórnlausu áti eða sukki. Borða að flestu leiti "venjulegan" og hollan mat og reyni að passa upp á að ég borði mátulega ört yfir daginn.

Ég hef haft miðvikudaga sem vigtunar- og mælingardaga og hugsa að ég haldi mig við það. Ég byrja morgundaginn á vigtun og fitumælingu, ummálsmælingar verða á 4. vikna fresti. Ég set líka inn tölur yfir mælingarnar annað kvöld. Núna er best að stefna í bólið sitt. :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 21:53:37 / lett i lund

Snúið aftur til hversdagslífsins..

Þessi dagur var ansi erfiður. Ég sofnaði ekki fyrr en kl 3 síðustu nótt (eða í morgun öllu heldur) og lét klukkuna vekja mig kl 9. Svakalega erfitt að vakna maður..! Ég sem var með þá áætlun að mæta í ræktina fyrir vinnu í fyrramálið. Ég veit ekki hvernig það fer. Börnin eiga erfitt með að sofna núna og ég þ.a.l. ekki farin að reyna að sofna sjálf.

Ég er búin að verja deginum í dag í "tóma vitleysu".. afrita tölvuskjöl, vafra á netinu, hanga yfir sjónvarpinu.. jú þvo þvott og ganga frá.. skipuleggja hitt og þetta.. en samt allt unnið með hangandi hendi og örugglega ekki í neinni forgangsröð.

Á þessari stundu bíð ég bara spennt eftir næstu helgi .. hehe. Ég ætla mér að skrifa hérna daglega... ekki veitir af aðhaldinu til að kýla aðgerðum í framkvæmd.

Farin til að taka til íþróttaföt fyrir morgundaginn, týna saman vítamínin og próteinduftið sem verður nestið mitt. Kannski ég leiti mér að fleiri bloggvinum.. vantar pepp og hvatningu þessa dagana. 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 01:39:12 / lett i lund

Nothing's gonna stop me...

Ég er búin að snúa sólarhringnum við í jólafríinu - eins og svo margir - og í morgun ætlaði mér aldrei að takast að vakna..

Þegar ég drattaðist framúr voru strax komnar þúsund afsakanir í kollinn á mér fyrir því að fara ekki í ræktina.. ég fór samt í æfingargallann :d

Þegar ég ætlaði að hendast út úr dyrunum kom upp vandamál með börnin .. ég leysti úr því án þess að hika og dreif mig út..

Þá uppgötvaði ég að ég fann ekki æfingarskóna mína.. ég fór samt og vonaði að þeir væru í ræktinni.

Þegar ég kom í ræktina fann ég ekki skóna.. en aðra eins svo ég bara tók þá traustataki.. ætlaði sko EKKI að sleppa æfingunni fyrst ég var mætt!

Þegar ég fór út úr bílnum við ræktina fann ég fyrir sársauka í öðru hnénu. Það hefur verið viðloðandi hægra hnéð svona sár verkur og þegar hann gerir vart við sig þá á ég erfitt með ákveðnar hreyfingar. Ég get t.d. ekki gengið niður tröppur nema fara fyrst með vinstri fót niður í næstu tröppu og svo þann hægri á eftir í sömu tröppu.. á erfitt með að ganga upp tröppur líka, hlaup eru sársukafull og já.. ýmislegt annað. Þetta virðist samt ekki vera álagstengt því stundum líður þetta hjá ef ég bara fer varlega (geng t.d. rösklega í stað þess að hlaupa). Ég fór á hjólið og þar finn ég ekki mikið fyrir þessum verk.

Síðan tek ég til við prógrammið mitt og ákveð að undanskilja framstig og hnébeygju útaf sársaukanum í hnénu. Ég finn mismikið fyrir verknum og er því lengur með sumar æfingar en aðrar. Það + hvað ég var lengi að koma mér á staðinn (svefninn, börnin, skórnir..) gerði það að verkum að ég er að renna út á tíma þegar verkurinn í hnénu hverfur eins og dögg fyrir sólu. Ég náði ekki að klára allar æfingarnar en einungis framstigið varð eftir þegar ég fór út + kviðæfingar.. og það gerði ég bara heima :D
Það var ekki lítið stolt Létt sem skundaði heim á leið... fannst ég ósigrandi..
Fj.. hvað ég ætla að negla þetta núna... :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 34
Klukkan
Dagatal